 | 6h.is Í upphafi völdum við að versla við Netvistun eftir að hafa gert verðsamanburð á markaðnum. Við sjáum ekki eftir því. Persónuleg og fagleg þjónusta einkenna þetta litla fyrirtæki og hafa þau staðið undir öllum okkar væntingum. Samstarfið hefur verið mjög ánægjulegt og krefjandi verkefni hafa verið leyst með útsjónarsemi og jákvæðu hugarfari. Við erum mjög ánægð með útkomuna á www.6h.is og mælum tvímælalaust með þjónustu Netvistunnar.
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir Formaður ritnefndar www.6h.is
|
 | ANDREA CLOTHING Company
Netvistun tók okkur opnum örmum þegar við vorum að byrja með okkar vefverslun www.andrea.is. Allt samstarf okkar hefur verið til fyrirmyndar, það er ekkert sem þessir strákar geta ekki gert. Þeir eru reiðubúnir að taka öllum ábendingum og hugmyndum og gera þær að veruleika. Jákvætt viðmót og fljót og góð þjónusta einkennir fyrirtækið. Heimasíðan er passlega einföld og fljótleg að vinna með. Við erum rosalega ánægð með okkar síðu og höfum fengið gífurlega góð og mikil viðbrögð og vitum að það var hárrétt ákvörðun að opna netbúð.
Andrea www.andrea.is
|
 | Jörth ehf
Ég er einstaklega ánægð með faglega og góða þjónustu hjá Netvistun. Það sem ég kann einna best að meta er hve hratt og vel þau vinna. Hvað varðar tæknilegu hliðina þá standa þau sig frábærlega og eru alltaf til staðar þegar á þarf að halda. Það gengur allt hratt og vel fyrir sig og auðvelt að ná í fólk til að fá aðstoð. Síðan hefur fengið mjög góða dóma og er strax farin að skila sínu sem er mjög ánægjulegt. Fyrir mér er Netvistun traust fyrirtæki sem stendur vel undir væntingum.
Birna Ásbjörnsdóttir www.jorth.is |
 | Talent RáðningarVið hjá Talent Ráðningum eru mjög ánægðar með bæði útkomu heimsíðunnar okkar og ekki síður samskiptin við starfsmenn Netvistunar. Við höfum fengið mikið hrós fyrir síðuna, bæði hvað hún er lífleg, aðgengileg og skemmtileg.
Ekki skemmir fyrir að starfsmenn Netvistunar er einstaklega skemmtilegir og hugmyndaríkir og alltaf gaman að eiga samskipti við þá. Lind og Mjöll hjá Talent Ráðningum. www.talent.is |
 | Plexigler ehfHeimasíðurnar frá Netvistun eru bæði einfaldar og þægilegar. Viðskiptavinir okkar hafa óspart hrósað okkur fyrir þægilega heimasíðu sem gerir þeim kleift að skoða vöruúrval, senda fyrirspurnir og kynnast fyrirtækinu á sem bestan máta. Fljót og góð þjónusta í uppfærslum, markaðssetningu og hvernig skal fara að svo að síðan nýtist sem best, innigla svo gæði og áræðanleika Netvistunar enn betur.
Hafsteinn Hjartarson, Framkvæmdarstjóri www.plexigler.is |
 | Aveda á ÍslandiÞað er ekki nóg að setja upp heimasíðu. Vinnan felst í því að halda henni áhugaverðri viku frá viku. Netvistun býður upp á lausn sem við hjá Aveda getum nýtt okkur til þess að ná því markmiði.
Það sem nýja síðan hefur gert fyrir okkur:
- Starfsumsóknum til okkar hefur fjölgað mikið og er hópurinn sem við getum valið úr breiðari en áður.
- Fyrirspurnir frá hugsanlegum viðskiptavinum hafa aldrei verið fleiri. Á það einkum við um fyrirtæki á landsbyggðinni.
- Nýjar vörur ná sölumarkmiðum fyrr en áður en miðlun upplýsinga varðandi nýjar vörur til söluaðila er nú mun auðveldari og markvissari. Við þurfum að ná til 80-120 starfsmanna þeirra fyrirtækja sem kaupa vörur af okkur. Hingað til höfum við þurft að treysta á að starfsmenn fyrirtækjanna upplýsi hvern annan þegar ný vara kemur á markaðinn en nú náum við til þeirra milliliðalaust.
Aveda á Íslandi er á fyrsta stigi hvað varðar nýtingu á þessum miðli og hefur hann staðið undir þeim væntingum sem við gerðum og vel það.
Heimir Hermannsson, sölustjóri www.aveda.is |
 | Á. ÓskarssonNú höfum við hjá Á.Óskarssyni tekið í notkun nýtt vörukynningarkerfi í þeirri von að auðvelda viðskiptavinum okkar að nálgast þær vörur sem við bjóðum upp á. Það er stefna okkar og markmið að reyna að koma breiðri línu af okkur vöruúrvali inn á netið en það er mikil vinna sem trúlega aldrei mun sjá fyrir endan á.
Kerfið er hannað af Netvistun ehf. og er enn í þróun sem og öll heimasíðan en viðskiptavinir okkar geta búist við reglulegum uppfærslum héðan í frá. Við viljum nota tækifærið og þakka Netvistun ehf. fyrir frábært samstarf sem er rétt að byrja og við sjáum sko ekki eftir að hafa hafið!
Starfsfólk Á.Óskarssonar ehf. www.oskarsson.is |
 | Dansrækt JSBVið erum mjög ánægð með nýju heimasíðuna okkar og mælum hiklaust með Netvistun. Við fáum reglulega hrós fyrir síðuna frá viðskiptavinum okkar.
Dansrækt JSB www.jsb.is |
 | Ofnasmiðja Reykjavíkur"Við erum mjög ánægð með nýju síðuna okkar og það sem mikilvægara er, viðskiptavinir okkar hafa lýst yfir ánægju sinni vegna hennar og þeim þægindum sem í því felst að geta skoðað vörurnar okkar á netinu. Við höfum afgreitt margar pantanir með hjálp síðunnar."
Ketill Björnsson, framkvæmdarstjóri www.ofnasmidja.is |