Mozilla Thunderbird

Það fyrsta sem þarf að gera er að fara í Tools og í Account Settings



Næst þarf að smella á Account Actions og svo Add Mail Account.



Þá þarf að fylla inn upplýsingar, nafn, netfang og lykilorð.



Thunderbird reynir að finna stillingarnar fyrir póstþjónana sjálfkrafa, það mun ekki ganga upp því að forritið setur á rangar öryggisstillingar. Því þarf að haka á Manual Setup.



Smelltu á netfangið þitt og veldu Server Settings. Þarna þarf að breyta Connection Security úr STARTTLS í None



Næst þarf að smella á Outgoing Server (SMTP), smella á netfangið og velja Edit. Þar inni þarf að taka hakið úr Use name and password og breyta Connection security í None.

 
 
 
Netvistun ehf - Hamraborg 20a - 200 Kópavogi - Sími 414-5500 - netvistun@netvistun.is